8 Desember 2015 15:57

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, við Gunnarshólma. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 85 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða en þarna er 90 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust báðir á 101 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.