10 Febrúar 2016 18:16

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á móts við Geirland. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 138 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða en þarna er 90 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 99 og 100.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.