31 Janúar 2018 16:27

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á móts við Geirland. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 258 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða en þarna er 90 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og hálka var á meðan hraðamælingunni stóð.