15 Janúar 2019 16:22

Flestir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 204 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema fjórum ekið á löglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 100 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og snjóþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.