12 Nóvember 2019 16:28

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í vesturátt, á móts við Sundlaug Seltjarnarness. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 119 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Hinir brotlegu mældust allir á 59 en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.