14 Júní 2016 15:35

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Þingvallavegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, að Kjósarskarðsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 90 km hámarkshraði. Meðalhraði ökutækjanna var aðeins 71.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.