11 Júlí 2016 16:16

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Þingvallavegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, að Bugðu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 236 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 90 km hámarkshraði. Meðalhraði ökutækjanna var aðeins 76.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.