3 Júní 2016 16:53

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Þingvallavegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, á móts við Skálafell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða, en þarna er 90 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 114.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.