28 Nóvember 2012 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Vesturgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í vesturátt, við Framnesveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 18 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist 46 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.