4 Ágúst 2017 10:01

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi í Kollafirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 387 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Hinir brotlegu mældust á 100, 110 og 113 en þarna er 90 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.