31 Júlí 2015 17:52

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi í Kollafirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 394 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Hinir brotlegu mældust á 100 og 103 (2) en þarna er 90 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.