4 Desember 2015 16:49

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, að Bauhaus. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 708 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 80 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 93 og 110 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.