21 Október 2010 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, við Móa á Kjalarnesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 158 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem ók of hratt mældist á 99.