16 Júlí 2013 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Auðbrekku í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Auðbrekku í vesturátt. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 50 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 61 og 62 km hraða.

Vöktun lögreglunnar í Auðbrekku er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.