14 Október 2009 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við umferðar- og hraðaeftirlit í Austurökrum í Garðabæ í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru engin brot mynduð í Austurökrum en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Skeiðökrum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru aðeins 7 ökutæki þessa akstursleið og voru ökumenn þeirra allir til fyrirmyndar, eins og að framan greinir, en þarna er 50 km hámarkshraði. Almennt var ekið talsvert undir leyfðum hámarkshraða.

Eftirlit lögreglunnar í Austurökrum var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu sem hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.