2 Október 2012 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Baughúsum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baughús í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru reyndar aðeins 7 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Baughúsum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.