15 September 2016 15:58

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Dalsmára í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í norðurátt, við Smáraskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða. Hinn brotlegi mældist á 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.