3 Júlí 2012 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Einarsnesi í Reykjavík í  dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Einarsnes í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Einarsnesi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.