16 Mars 2016 16:11

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Háholti í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í suðurátt, við Brattholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru reyndar aðeins 9 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða. Hinn brotlegi mældist á 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Háholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.