3 Mars 2023 09:20

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, við Hlíðaskóla. Á 30 mínútum, eftir hádegi, fóru 89 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 41.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.