27 Júní 2012 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Hólmgarði í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hólmgarð í austurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru reyndar aðeins 8 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hólmgarði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.