23 Júlí 2015 22:51

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Holtagerði í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Holtagerði í austurátt, á móts við Holtagerði 13. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 14 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu, ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 39 km hraða.

Vöktun lögreglunnar í Holtagerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.