30 Mars 2015 18:08

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Hvalfjarðargöngum á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvalfjarðargöng í norðurátt, við Guðlaugu. Á einni klukkustund, eftirr hádegi, fóru 190 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu, ekið á löglegum hraða en þarna er 70 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 82 km hraða.

Vöktun lögreglunnar í Hvalfjarðargöngum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.