7 Apríl 2017 16:01

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Hvalfjarðargöngum í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvalfjarðargöng í norðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 183 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða en þarna er 70 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 82 km hraða.

Vöktun lögreglunnar í Hvalfjarðargöngum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.