17 Ágúst 2012 12:00

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Hvalfjarðargöngum á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvalfjarðargöng í norðurátt, um 1 km frá syðri munni gangnanna. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 193 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða, en þarna er 70 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 83 km hraða.

Vöktun lögreglunnar í Hvalfjarðargöngunum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.