7 Mars 2013 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Jaðarseli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jaðarsel í norðurátt, við Jórusel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 113 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 50 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 59 og 60 km hraða.

Vöktun lögreglunnar í Jaðarseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.