11 Október 2018 16:36

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Stakkahlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Sá sem hraðast ók mældist á 45 en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á með hraðamælingunni stóð.