10 Ágúst 2012 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Vættaborgum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vættaborgir í austurátt, ofan við Sambýlið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru reyndar aðeins 11 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu, ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 41 km hraða.

Vöktun lögreglunnar í Vættaborgum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.