18 September 2019 16:38

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Landspítalinn unnu Media Management verðlaunin, sem fjallað var um hér á síðunni sl. sunnudag. Það var sameiginlegt verkefni stofnananna, þar sem notast var við Digital Asset Management lausn, sem færði þeim verðlaunin, en verkefnið sneri að vörslu og dreifingu viðkvæmra gagna þar sem þarf bæði að tryggja öryggi þeirra og aðgengi skilgreindra notenda með skilvísum og fljótlegum hætti. Viðkvæmu gögnin sem vísað er til eru myndir sendar frá Neyðarmóttökunni til tæknideildar lögreglu, auk mynda sem tæknideild sendir réttarmeinafræðingum spítalans og öfugt. Öll varsla þessara mynda er nú með miklu öruggari hætti en áður, auk þess sem verkefnið leiðir líka til tímasparnaðar og hagræðingar.
Það var Þekking, samstarfsaðili FotoWare á Íslandi, sem vann að verkefninu með Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Landspítalanum. Meðfylgjandi er mynd af hópnum sem vann að verkefninu og verðlaunagripnum.