6 Nóvember 2020 11:14

Karlmaður á sextugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, eða til 12. nóvember, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innbrotum og þjófnuðum í umdæminu.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.