30 Desember 2019 12:07

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu Lögreglunnar á  höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni á sextugsaldri og hefur hann því verið látinn laus. Niðurstaðan hefur verið kærð til Landsréttar. 

Lögreglan lagði kröfuna fram á laugardag en dómari tók sér frest til hádegis í dag til að taka afstöðu til málsins. Krafan var lögð fram á grundvelli rannsóknarhagsmuna og til að varna því að sakborningur haldi áfram brotum meðan málum hans er ekki lokið.