11 Júlí 2018 11:39

Hamrahlíð verður lokað við Kringlumýrarbraut fimmtudaginn 12. júlí kl. 14 og mun lokunin standa í u.þ.b. hálfan mánuð. Ástæða þess er endurnýjun á aðalæð vatnsveitu Veitna, en nú er komið að því að leggja lögnina undir Hamrahlíð. Framkvæmdirnar raska einnig akstri á leið 13 hjá Strætó og nokkrar biðstöðvar verða óvirkar. Vatnslögnin er lögð frá dælustöð við Stigahlíð, meðfram Kringlumýrarbraut að Bústaðavegi.