5 Ágúst 2022 14:56
Á morgun fer Gleðigangan fram sem er hápunktur Hinsegin daga og væntanlega verður mikið um dýrðir. Gleðigangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti stundvíslega kl. 14. Gengið verður eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn þar sem tekur við glæsileg útihátíð að göngu lokinni.
Uppstilling byrjar kl.12 en gangan hefst kl. 14. Gönguleiðin og götulokanir vegna hennar má sjá á meðfylgjandi korti. Götulokanir verða á milli kl. 10.00 – 18.00.
Við biðjum fólk að gæta þess að virða lokanir, leggja löglega og muna eftir góða skapinu. Gleðilega hátíð!