26 Maí 2020 16:56

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot karlmanns á þrítugsaldri gegn tveimur börnum í Hafnarfirði. Maðurinn var handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í nokkra daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness, en Landsréttur felldi síðan úrskurðinn úr gildi. Húsleit var framkvæmd á heimili mannsins og lagt hefur verið hald á gögn í þágu málsins. Skýrslutökur vegna barnanna fóru fram í Barnahúsi.

Rannsókn málsins miðar vel.