30 Nóvember 2021 16:29

Þrír eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að grunsamlegur hlutur fannst í ruslagámi í Mánatúni í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar vegna málsins.

Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.