14 Febrúar 2022 17:16
Nokkuð er um að grýlukerti og snjóhengjur hafi myndast, sérstaklega í miðborginni, og því vörum við fólk við að þau geti fallið fyrirvaralítið. Að sama skapi biðjum við húseigendur og verslunarfólk að gera ráðstafanir, að skoða ástand sinna hús og fjarlægja grýlukerti og snjó ef þurfa þykir.