6 Maí 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í austurborginni í gærmorgun. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 40 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á fjölda gróðurhúsalampa og ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. 

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.