21 Febrúar 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á um 800 gr. af marijúana og talsvert magn af sterum sem hún fann við húsleit í íbúð í Kópavogi á föstudag. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.