14 Nóvember 2018 16:34

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í dag, að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi, íslenskan karlmann fd. 1997 í farbann til kl. 16:00 19. desember n.k.   Maðurinn var handtekinn þar sem hann var einn á vesturleið á Suðurlandsvegi um Mýrdalssand um kl. 20:00 þann 7. nóvember s.l á vanbúinni bifreið.   Athugull lögreglumaður áttaði sig fljótlega á því að fleira vantaði uppá því maðurinn reyndist próflaus og undir áhrifum fíkniefna.   Við leit í bifreiðinni fundust tæp 6 kíló af hassi sem maðurinn kannaðist við að vera að flytja en vildi að öðru leiti ekki skýra tilvist þeirra. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald sem átti að renna út kl. 16:00 á morgun en ekki þótti tilefni til að halda honum lengur vegna rannsóknarinnar og var hann því látinn laus í dag en úrskurðaður í farbann eins og áður sagði.

Áfram er unnið að rannsókn málsins, m.a. um uppruna efnanna.   Ekki verða veittar upplýsingar um gang hennar að sinni.