17 Ágúst 2006 12:00

Við sameiginlegt eftirlit lögreglunnar í Hafnarfirði og Kópavogi í gærkveldi, voru sex karlmenn á þrítugsaldri handteknir vegna gruns um fíkniefnamisferli.

Í framhaldinu var farið í húsleit í húsi í Reykjavík og fundust þar  um 650 grömm af hassi, 100 grömm af meintu amfetamíni og nokkrar E-töflur.  Fíkniefnin voru að mestu ætluð til sölu.  Málið telst nú upplýst og hefur þeim handteknu verið sleppt.