22 Júní 2017 11:25

Hálendisvegir eru nú óðum að opnast eins og sést á vef Vegagerðarinnar.  http://www.vegagerdin.is/ferdaupplysingar/faerd-og-vedur/allt-landid-faerd-kort/ Þannig er nú orðið fært norður Sprengisand í Bárðardal, fært er inn í Landmannalaugar frá Sigöldu en mikið vatn lokar Dómadalsleiðinni inn í Laugar.  Þá er Kjalvegur fær.

Ljóst er að ferðamenn verða margir á hálendinu í sumar og í fyrstu eiginlegu sumareftirlitsferð um hálendisferð okkar á sumrinu voru þeir þegar byrjaðir að týnast þangað inneftir.   Tjaldbúar t.d. farnir að hreiðra um sig í Landmannalaugum.

Lögreglan á Suðurlandi mun verða með virkt eftirlit á hálendi umdæmisins á komandi sumri eins og á síðasta ári en ljóst er að árangur af því verkefni er umtalsverður.   Þannig er það mat þeirra sem til þekkja að verulega hafi dregið úr spjöllum vegan utanvegaaksturs og einnig úr ölvunarakstri við það að þetta eftirlit var tekið upp.

Nú á næstu vikum mun lögregla fara í þá skála á hálendinu þar sem gisting er seld ferðamönnum og kanna hvort fyrir liggi rekstrarleyfi Sýslumanns með tilheyrandi uppáskrift frá eldvarnaeftirliti, heilbrigðiseftirliti og lögreglu en nokkuð hefur vantað upp á að svo sé.   Lagaramminn er skýr,  lögreglu ber að loka þeim stöðum þar sem þessi leyfi eru ekki fyrir hendi og því skorum við á rekstraraðila að koma þessu í lag hið snarasta ef upp á vantar.  Þetta á við hvort sem gisting er seld í svefnpokapláss eða í úppábúin rúm.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Landmannalaugum, Veiðivötnum og í Hrauneyjum