20 Desember 2021 09:59

Skráð voru 677 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í nóvember og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir nóvember 2021.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningar um um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um átta prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 119 tilkynningar um ofbeldisbrot í nóvember og fækkaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Tilkynningar um heimilisofbeldi fjölgaði á milli mánaða og fóru úr 58 tilkynningum í október upp í 64 tilkynningar í nóvember. Það sem af er ári hafa borist um 10 prósent fleiri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust níu beiðnir um leit að börnum og ungmennum í október og fækkaði þessum beiðnum örlítið á milli mánaða.

Tilkynningum um eignaspjöll fækkaði töluvert á milli mánaða á meðan tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fjölgaði lítillega.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og voru tvö stórfelld fíkniefnabrot skráð í nóvember. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í nóvember voru skráð 719 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 26 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.