24 Maí 2023 09:27

Skráð voru 794 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í apríl og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir apríl 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningar um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um 23 prósent fleiri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 120 tilkynningar um ofbeldisbrot í apríl. Tilkynningar um heimilisofbeldi fjölgaði á milli mánaða og fóru úr 54 tilkynningum í mars í 70 tilkynningar í apríl. Það sem af er ári hafa borist um 12 prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Í apríl voru skráð sjö tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi og fjögur tilvik þar sem lögreglumanni var hótað ofbeldi.

Alls bárust 16 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í apríl.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru fimm stórfelld fíkniefnabrot skráð í apríl. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða á meðan tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði örlítið.

 

Í janúar voru skráð 744 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð álíka mörg umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu og hafa verið skráð að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.