22 Júní 2021 13:41

Skráð voru 896 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í maí og fjölgar þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir maí 2021.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða og var mestu fjölgunina að sjá á tilkynningum um reiðhjólaþjófnað. Álíka margar tilkynningar bárust um innbrot í apríl og maí.

Skráðum ofbeldisbrotum fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum um heimilisofbeldi en það sem af er ári hafa borist um 21 prósent fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fækkaði á milli mánaða líkt og tilvikum þar sem lögreglumanni var hótað um ofbeldi.

Alls bárust 16 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í maí en það sem af er ári hafa borist um 11 prósent fleiri leitarbeiðnir en bárust að meðaltali á sama tímabili árin 2018-2020.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru fjögur stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í maí. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða líkt og tilkynningar þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í maí voru skráð 768 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 21 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.