4 Febrúar 2005 12:00

Lögreglunni á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði var í dag veittur heiðursskjöldur tryggingafélagsins Sjóvá fyrir “árangursríkt átak í fækkun afbrota undangengin tvö ár”. Heiðursskjöldurinn var afhentur í hófi sem haldið var í Hásölum í Hafnarfirði í dag.  

Egill Bjarnason, yfirlögregluþjónn, veitti skildinum viðtöku fyrir hönd lögreglu úr hendi Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóra tjónasviðs Sjóvá, sem og fjórum stafrænum myndavélum er afhent voru lögreglu af sama tilefni.