23 Júní 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær rúmlega tvítugan mann eftir að skotvopn fannst við húsleit í Hafnarfirði. Við húsleitina fannst heimagerð byssa og 22 kalíbera skotfæri, ásamt litilræði af fíkniefnum. Lögregla telur hugsanlegt að skotvopnið hafi verið notað til að vinna skemmdarverk  á ökutæki á Seltjarnarnesi í síðustu viku.  Á staðnum fundust einnig gögn sem tengjast ætluðum meðlimum vélhjólahópsins Hells Angels og er hinn handtekni grunaður um að tengjast hópnum.  Við aðgerðinar naut lögregla liðsinnis sérsveitar ríkislögreglustjóra.