25 Júní 2018 15:42

58 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt á Suðurlandi í liðinni viku.   Þá voru skráningarnúmer tekin af 4 ökutækjum sem reyndust vera ótryggð í umferðinni.   Þrír voru kærðir fyrir að aka undir áhrifum áfengis og af þeim var einn einnig grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna. Sá hafði, þann 23. júní s.l. ekið út af vegi á leið niður Kambana án þess þó að slys yrðu á fólki.   Annar ökumaður var stöðvaður í nágreni Hafnar í Hornarfirði þann 18. júní s.l. grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Fjórum sinnum var tilkynnt um að ekið hafi verið á sauðfénað á þjóðvegi 1. Einusinni í nágreni Kirkjubæjarklausturs og þrisvar í nágreni Hafnar. Þá bárust tilkynningar um lausar kindur við Landvegamót og laus hross bæði á Selfossi og við Hvolsvöll.

Þann 21. júní var erlendur ferðamaður kærður fyrir að aka utan vegar við Kjalveg milli Hveradala og Kerlingafjalla.   Ferðamaðurinn festi bifreið sína og þurfti aðstoð bílaleigu sinnar við að leysa úr sínum málum. Sektargreiðslan var upp á 70 þúsund krónur. Kostnað vegna björgunraðgerða vitum við ekki um.

Annar erlendur ferðamaður var kærður fyrir akstur utan vega við Jökulsárlón þann 20. júní.   Sá lauk máli sínu með greiðslu sektar að upphæð 50.000.- krónur.

Nú eru lögreglumenn við eftirlit á hálendinu á sérbúnum bíl til fjallferða.  Í dag hljómaði ferðaplanið upp á viðveru í Þórsmörk og þar í kring.  Lögð verður áhersla á að sinna hálendiseftirliti í sumar enda hefur það sýnt sig að slíkt hefur veruleg áhrif á hegðun vegfarenda á hálendinu.

Lögreglumenn í eftirliti með stórum bifreiðum höfðu, þann 19. júní afskipti af vörubifreiðastjóra þar sem hluti farms bifreiðarinnar féll af palli hennar og í vegkant Suðurlandsvegar.   Mikilvægt er að ganga tryggilega frá farmi enda getur hann valdið umtalsverðri hættu við það að falla af bíl í umferð eins og gefur að skilja.

Þann 19. júní tilkynnti ökumaður fólksbifreiðar um að hann hafi ekið á dreng á reiðhjóli á gangbraut við Eyrarveg á Selfossi. Drengurinn slapp ómeiddur að sögn en reiðhjól hans var ónýtt eftir.