2 Maí 2022 10:56

Ökumaður bifhjóls slasaðist þegar hann missti stjórn á hjóli sínu við framúrakstur í lausamöl á Grafningsvegi efri þann 25. apríl s.l.   Að líkindum brotinn á fingrum og fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús.   Þennan sama dag fótbrotnaði drengur þegar árekstur varð með bifreið og vespu sem hann ók við hringtorg Fossheiði / Tryggvagata á Selfossi.  Hann fluttur sömuleiðis til aðhlynningar á sjúkrahúsi.    Að kvöldi 30. apríl var þyrla LHG kölluð til þegar 9 ára barn varð undir bifreið á vegi í Brekkuskógi í uppsveitum Árnessýslu.  barnið  með áverka á öxl og brjóstkassa og flutt til aðhlynningar á sjúkrahús.     Öll þessi slys eru í rannsókn áfram.

Ferðamaður á leið sinni upp Reykjadal í Ölfusi þann 29. apríl s.l. slasaðist á fæti þegar hann steig ofan í leir við hver í Rjúpnabrekkum fremst í dalnum.  Sökk þar í leir og er brunninn á fæti upp á ökla.   Hann fluttur með til aðhlynningar á sjúkrahús.

Þann 28. apríl slasaðist maður þegar hann féll af vinnupalli við malarhörpu í Þorlákshöfn.  Fallið 3 til 4 metrar og hann alvarlega slasaður eftir.   Fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar og vinnueftirlit kallað til frekari rannsóknar á vettvangi.  Handrið á vinnupallinum virðist hafa gefið sig með þessum afleiðingum.   Deginum áður hafði karlmaður fallið úr um 3. m hæð úr stiga við vinnu sína í nýbyggingu, einnig í Þorlákshöfn.  Hann með áverka á höfði og fluttur á sjúkrahús.  Vinnueftirliti gert viðvart um slysið.

38 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku á Suðurlandi.  Hraði eins þeirra mældist 150 km/klst á Suðurlandsvegi í Flóa.   Sektin þar 210 þúsund auk sviptingar ökuréttar í 1 mánuð.    Af þessum 38 voru 24 í Árnes og Rangárvallasýslum  Þá féllu 7 hraðamælingar til hjá lögreglumönnum við eftirlit með stórum bílum víðsvegar um Suður- og Suðvesturlandið svona meðan beðið var eftir næsta bíl til að skoða leyfi og annað hjá.   Þá vou 5 þessara í Sveitarfélaginu Hornafirði.  Allir sitja eftir með óþarfa kostnað og það að hafa valdið samferðamönnum sínum og sjálfum sér óþarfa hættu í umferðinni.

Ökumaður fólksbifreiðar við Landvegamót var sektaður þar sem barn í bílnum var án öryggisbúnaðar.   Viðeigandi barnavernd einnig gert viðvart um málið.

Eldur kom upp í þvottavél í íþróttamiðstöðinni á Hellu þann 27. apríl.  Starfsmenn brugðust snarlega við og slökktu með slökkvitæki og færðu vélina út fyrir hús.   Tjón minniháttar en þó reykur um hluta hússins.   Þá var tilkynnt um eld um borð í björgunarskipinu Ingibjörgu þar sem það lá bundið við bryggju í Hornafjarðarhöfn þann 25. apríl s.l.   Við athugun reyndist um bilun í sjálfvirkum slökkvibúnaði í vélarrúmi að ræða og aðstoð því afturkölluð.