3 Júlí 2018 09:38

30 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku.   161 km/klst var mesti mældi hraði. Þar var á ferðinni, um Suðurlandsveg austan Hvolsvallar, bandarískur ríkisborgari sem situr uppi með 230 þúsund króna sekt og viðeigandi sviptingu.   Íslenskur ökumaður var kærður fyrir að aka á 99 km/klst hraða á Eyrarvegi við bæjarmörk Selfoss, þar sem leyfður hraði er 50 km/klst.   100 þúsund króna sekt þar.  Hraðakstursmálin dreifast nokkuð jafnt um umdæmið, 9 ökumenn eru kærðir í Árnessýslu, 10 í Rangárvallasýslunni, 7 í nágreni Kirkjubæjarklausturs og 3 í öruggum höndum Hornfirðinganna.

Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir meinta ölvun við akstur. 2 þeirra á Höfn um liðna helgi. Um miðjan dag á fimmtudag hafði lögregla afskipti af ökumanni bifreiðar sem ekið hafði á grindverk í íbúðargötu á Selfossi og síðan af vettvangi. Sá reyndist ölvaður og sviptur.   Að kvöldi miðvikudagsins hafði ökumaður á Eyrarbakkavegi verið stöðvaður og reyndist sá einnig ölvaður.

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur bifreiðar sinnar.   Hvor um sig þarf að greiða 40 þúsund króna sekt fyrir brotið.

Skráningarnúmer voru tekin af tveimur ökutækjum sem reyndust ótryggð í umferðinni. Sekt fyrir að vanrækja að tryggja ökutæki lögboðinni ökutækjatryggingu er nú 50 þúsund krónur.

Einungis eitt umferðarslys með slysum á fólki var tilkynnt til lögreglu en árekstur varð á Suðurlandsvegi, við áningastað við Klifanda þegar ökumaður bifreiðar hugðist aka fram úr bifreið sem beygt var til vinstri inn á áningastaðinn.   Meiðsl eru talin minniháttar.

Fimm tilfelli voru tilkynnt þar sem ekið var á sauðfé við Suðurlandsveg. Þá var í tvígang tilkynnt um lausa nautgripi við vegi og í tvígang um laus hross.

Tveir hestamenn meiddust þegar þeir féllu af baki hesta sinna þann 29. júní s.l., annar á Selfossi en hinn skammt frá Skálholti.

Áður hefur komið fram í fjölmiðlum að björgunarsveitir leituðu og aðstoðuðu ferðamenn á Fimmvörðuhálsi og á Emstrum sem gefist höfðu upp vegna kulda og vosbúðar.   Fólki fer nú hratt fjölgandi á hálendinu eftir því sem leiðir opnast og færð batnar. Nauðsynlegt er að hafa í huga að ferðir á fjöllum eru alltaf þannig að hafa þarf varan á og búa sig í samræmi við íslenskar aðstæður.

Gististað í Árnessýslu var lokað s.l. fimmtudag þegar í ljós kom að leyfi til rekstrar var útrunnið. Rekstraraðila var gefið færi á að útvega gestum sínum gistingu annarsstaðar svo þeir yrðu ekki á götunni.   Lögreglumaður hefur nú verið ráðinn í hálft starf til að hafa eftirlit með veitinga og gististöðum í umdæminu og má því búast við að fleiri tilvik sem þessi komi upp á næstunni. Þegar tilvik sem þessi koma upp er lögreglu skylt að stöðva rekstur strax og henni ekki heimillt að veita einhverja fresti til að afla tilskilinna leyfa.   Því er fullt tilefni til að hvetja þá sem ekki eru með sín mál í lagi til að kippa þeim í liðinn strax því ljóst er að trúverðugleiki gististaðar tapast ef rekstraraðili þarf að vísa gestum sínum út.

Hálendiseftirlit lögreglunnar á Suðurlandi er nú komið í fullan gang og verða lögreglumenn á hálendinu við eftirlit flesta daga í sumar.