30 Apríl 2018 11:42

Í liðinni viku voru 39 ökumenn kærðir fyrir að aka ökutækjum sínum of hratt.   Tveir þeirra mældust á 147 km/klst hraða þar sem leyfður hraði er 90 km/klst og „sleppa“ með 130 þúsund króna sekt og sviptingu ökuréttar í einn mánuð fyrir brot sín. Með gildistöku nýrrar reglugerðar um sektir og önnur viðurlög vegna umferðarlagabrota sem tekur gildi á morgun 1. maí hækkar þessi sekt í 210 þúsund krónur. (og svipting í einn mánuð) Sama á við um mörg önnur brot sem til umfjöllunar eru í okkar almenna umferðareftirliti og eru ökumenn eindregið hvattir til að spara sér útgjöldin með því að aka eftir umferðarlögum.   Allt er þetta gert til að skapa umferðinni aðhald og draga úr umferðarslysum.

Skráningarnúmer voru tekin af tveimur ökutækjum sem reyndust í umferð án gildra trygginga.   Sekt við slíku broti verður, eftir mánaðarmótin, 50.000 krónur en þessir 2 falla inn á „gömlu reglugerðina“ og fá því 30 þúsund króna sekt fyrir brotið.

Einn er grunaður um að hafa ekið bifreið sinni ölvaður og annar undir áhrifum fíkniefna. Báðir sömu nóttina, aðfaranótt 28. apríl, annar á Eyrarbakkavegi en hinn í uppsveitum Árnessýslu.

Slökkvilið var kallað að fangelsinu á Litla – Hrauni að kvöldi 28. apríl s.l. en þar kom upp eldur í fangaklefa.   Ekki urðu slys á fólki og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.

Í eftirliti með farþegaflutningum við Jökulsárlón og þar í kring voru 3 aðilar kærðir fyrir að stunda farþegaflutning í atvinnuskyni án þess að hafa til þess rekstrarleyfi. Viðkomandi gert að hætta akstri og fá sína sekt fyrir meint brot sín.